Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir á sviði samgöngumála

Úrskurður í máli nr. SRN18010113

Ár 2018, þann 9. júlí, er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r

í máli nr. SRN18010113

Kæra X

á ákvörðun

Samgöngustofu

 

I.      Kröfur og kæruheimild

Þann 25. janúar 2018 barst ráðuneytinu kæra X, kt. 000000-0000 (hér eftir nefnd X), á ákvörðun Samgöngustofu (hér eftir nefnd SGS) frá 24. október 2017 um að synja umsókn X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar. Af kæru verður ráðið að X krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og henni veitt umbeðið leyfi.

Kæruheimild er í 4. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001.

 

II.        Málsatvik og málsmeðferð ráðuneytisins

Af gögnum málsins má sjá að X lagði fram umsókn um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar í ágúst 2017. Með ákvörðun SGS þann 24. október 2017 var þeirri umsókn synjað.

Ákvörðun SGS var kærð til ráðuneytisins með bréfi X mótteknu þann 25. janúar 2018.

Með bréfi ráðuneytisins dags. 7. febrúar 2018 var SGS gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum varðandi kæruna. Bárust þau sjónarmið með bréfi SGS mótteknu 13. mars 2018.

Með bréfi ráðuneytisins dags. 13. mars 2018 var X kynnt umsögn SGS og gefinn kostur á að koma að frekari athugasemdum vegna málsins. Engar athugasemdir bárust.

 

III.      Málsástæður og rök X

Í kæru vísar X til þess að hún hafi borið synjun SGS saman við ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 397/2003. Fái X ekki séð að í nefndri 6. gr. reglugerðarinnar séu tilgreindir neinir þeir skilmálar sem útskýri það að henni sé neitað um atvinnuleyfi á þeirri forsendu að hún uppfylli ekki skilyrði um starfsreynslu.

 

IV.      Ákvörðun og umsögn SGS

Í ákvörðun SGS kemur fram að skilyrði til að fá úthlutað atvinnuleyfi séu tilgreind í lögum um leigubifreiðar nr. 134/2001, sbr. reglugerð nr. 397/2003. Hafi SGS farið yfir umsókn X með tilliti til laga og reglna. Uppfylli X ekki skilyrði um starfsreynslu við akstur leigubifreiðar samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar og fái því ekki úthlutað atvinnuleyfi að þessu sinni. Þá kemur fram í ákvörðun SGS að í október 2017 hafi verið úthlutað 40 atvinnuleyfum til leiguaksturs.

Í umsögn SGS kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001 fari SGS með framkvæmd mála er varðar leigubifreiðar. Undir starfssvið stofnunarinnar falli m.a. útgáfa atvinnuleyfa. Í 6. gr. reglugerðar um leigubifreiðar nr. 397/2003, sbr. 8. gr. laga nr. 134/2001, sé fjallað um úthlutunarreglur þær sem gilda þegar gefin eru út atvinnuleyfi til leiguaksturs. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar veiti SGS að öllum skilyrðum uppfylltum atvinnuleyfi á takmörkunarsvæðum á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar. Sé SGS heimilt að taka sérstakt tillit til umsókna frá öryrkjum enda hafi þeir meðmæli frá Öryrkjabandalagi Íslands og tryggingayfirlækni um að leiguakstur henti þeim vel og fötlun hindri þá ekki í starfi. Öryrkjar fái metna 260 daga í reynslu við mat á atvinnuleyfisumsókn. Starfsreynsla samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar sé metin á grundvelli dagafjölda, þ.e. fjölda daga sem umsækjandi hefur starfað við akstur leigubifreiðar sem afleysingabílstjóri. Sá umsækjandi sem hafi flesta daga í starfsreynslu sé fyrstur í röðinni til að hljóta úthlutun atvinnuleyfis. Í október 2017 hafi farið fram úthlutun á 40 atvinnuleyfum til leiguaksturs. Þeir sem fengu úthlutað leyfum hafi verið með frá 1200 dögum upp í um 1600 daga. X hafi verið með 201 dag metinn í starfsreynslu þegar úthlutun fór fram. Í dag sé X með 295 daga metna miðað við þá akstursheimild sem hún hafi til 15. mars 2018 og teljist þeir dagar með sem enn eru óunnir. Hafi X samkvæmt framangreindu ekki náð sama dagafjölda og þeir 40 umsækjendur sem fengu úthlutun og hafi henni því verið synjað um útgáfu atvinnuleyfis til leiguaksturs.

 

V.        Niðurstaða ráðuneytisins

Um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiða, veitingu þeirra og skilyrði sem þarf að uppfylla er fjallað í lögum um leigubifreiðar nr. 134/2001. Í 5. gr. laganna er fjallað um skilyrði fyrir atvinnuleyfi og þau talin upp í 1. mgr. ákvæðisins. Í 3. mgr. 5. gr. kemur síðan fram að ráðherra geti í reglugerð kveðið nánar á um skilyrði fyrir atvinnuleyfi og akstri forfallabílstjóra. Um veitingu atvinnuleyfa er fjallað í 6. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins er atvinnuleyfi samkvæmt 5. gr. skilyrði þess að viðkomandi sé heimilt að taka að sér eða stunda leigubifreiðaakstur, sbr. þó 9. gr. laganna. Séu atvinnuleyfi gefin út af SGS hvort sem er á takmörkunarsvæðum eða utan þeirra. Um takmörkun á fjölda leigubifreiða er fjallað í 8. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. þess ákvæðis setur ráðherra í reglugerð, að fengnum tillögum SGS, nánari reglur um fjölda leigubifreiða á ákveðnum svæðum að fenginni umsögn sveitarstjórna, héraðsnefnda og félaga leigubifreiðastjóra. Segir þar einnig í 3. mgr. að þar sem takmörkun á fjölda leigubifreiða hafi verið ákveðin skuli umsækjandi fullnægja skilyrðum 5. gr. og sitji hann að jafnaði fyrir við úthlutun leyfa hafi hann stundað leigubifreiðaakstur í a.m.k. eitt ár. Samkvæmt lokamálslið 3. mgr. 8. gr. skal takmörkun þessi framkvæmd með útgáfu atvinnuleyfa samkvæmt lögunum.

Á grundvelli laga um leigubifreiðar hefur verið sett reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003. Í 4. gr. reglugerðarinnar er fjallað um takmörkunarsvæði. Kemur þar m.a. fram að hámarksfjöldi atvinnuleyfa á takmörkunarsvæði I sé 580 atvinnuleyfi. Þá kemur fram í ákvæðinu að takmörkun sé framkvæmd með útgáfu atvinnuleyfa svo sem hámarkstala segir til um. Um úthlutunarreglur er fjallað í 6. gr. reglugerðarinnar. Segir þar m.a. í 1. mgr. að SGS veiti að uppfylltum öllum skilyrðum atvinnuleyfi á takmörkunarsvæðum á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar.

Líkt og fram hefur komið sótti X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar á takmörkunarsvæði I en hámarksfjöldi atvinnuleyfa á því svæði er 580. Þegar umsókn X var til meðferðar hjá SGS voru til úthlutunar 40 laus atvinnuleyfi. Var það niðurstaða SGS að reynsla X hafi ekki verið nægjanleg til úthlutunar þar sem hún hafi ekki verið einn þeirra umsækjenda sem voru með mestu starfsreynsluna. Hafi X á þeim tíma sem úthlutun fór fram verið með 201 dag metinn í starfsreynslu en þeir sem fengu úthlutað leyfum hafi verið með frá 1200 dögum upp í um 1600 daga.

Það er mat ráðuneytisins að þau sjónarmið sem ákvörðun SGS byggist á séu í samræmi við þau ákvæði laga um leigubifreiðar og reglugerðar um leigubifreiðar sem rakin hafa verið og gilda um veitingu og úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða á takmörkunarsvæðum. Af gögnum málsins verði þannig ráðið að X hafi ekki verið einn af þeim umsækjendum sem voru með mestu starfsreynsluna. Hafi niðurstaða SGS því byggt á málefnalegum sjónarmiðum.

Með þessum athugasemdum er það mat ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Úrskurðarorð:

Staðfest er ákvörðun Samgöngustofu frá 24. október 2017 um að synja umsókn X um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum